Hjörtur við líkan af einu þeirra skipa sem Navis hefur tekið þátt í að hanna að undanförnu. Meðal nýjunga sem Navis kynnir á Íslensku sjávarútvegssýningunni að þessu sinni er tveggja skrúfu togari, skrokkhönnun sem nýtir orkuna betur, leiðir til að létta meðferð kara í lestum ísfiskskipa og endurbætt hönnun við línuveiðar. Allt eru þetta dæmi um lausnir sem starfsmenn Navis hafa verið að vinna að undanfarin misseri samhliða margvíslegum verkefnum fyrir erlendar útgerðir og skipasmíðastöðvar.
Nánast eingöngu erlend verkefni
NAVIS á Flatahrauni í Hafnarfirði hefur um árabil annast frumhönnun á ýmsum gerðum skipa auk breytinga á eldri skipum, breytingar og nýhönnun á vinnslulínum og fjölda annarra verkefna. „Allt frá stofnun Navis 2003 hafa nánast öll okkar verkefni verið fyrir erlenda aðila, því það hefur lítið verið að gerast í tengslum við nýsmíðar eða breytingar á íslenska flotanum,“ segir Hjörtur Emilsson, framkvæmdastjóri Navis. Hann segir litlar endurbætur hafi farið fram á íslenska flotanum undanfarið og eina nýsmíðaverkefnið sem í gangi er var sett af stað fyrir hrun. Á sama tíma haldi flotinn áfram að eldast og verða óhagkvæmari í rekstri.
Meðal verkefna sem Navis hefur unnið að undanfarin misseri er hönnun og eftirlit með breytingum á tveimur stórum kóreskum togurum. Navis vinnur einnig að samningum um verkefni í Kína og hefur fyrirtækið m.a. verið valið ásamt tveimur öðrum til að taka þátt í samkeppni um hönnun á liðlega 70 metra togara fyrir kínverska ríkið. Þá hefur fyrirtækið nýlega forhannað 60 metra togara fyrir japanska útgerð en japanska útgerðin bíður nú eftir leyfi stjórnvalda til að hefja smíði nýs togara að vestrænni fyrirmynd. Loks má nefna að starfsmenn Navis hönnuðu nýlega flutningapramma fyrir ástralskt námafyrirtæki, þannig að verkefn fyrirtækisins koma úr mjög ólíkum áttum.
Skipahönnun
Auk þeirra verkefna sem Navis hefur sinnt fyrir erlenda aðila hefur fyrirtækið haldið áfram vinnu að eigin skipahönnun og mun kynna sitthvað af því á sjávarútvegssýningunni. „Við munum meðal annars kynna nýjan 50 metra ísfisktogara, karakerfi í lestar ísfiskskipa og endurbætta hönnun á línuskipi. Þá erum við með drög að tveggja skrúfu togara sem er lausn sem getur verið hagkvæm fyrir skip að tiltekinni tegund og stærð.“
Hjörtur segir íslenska línuveiðiflotann kominn til ára sinna og að talsverður áhugi sé hjá útgerðum að ráðast í endurnýjun og fá skip sem eyða minna og sem ná inn meira af aflanum en þau gera í dag. „Í dag tapast alltaf eitthvað af fiskinum af línunni við skipshlið þegar verið er að draga hana um borð. Við höfum verið að líta til nýrrar lausnar sem stuðlar að því að ná þessum fiski í auknum mæli um borð og stefnum að því að kynna hana á sjávarútvegssýningunni. Við höfum einnig verið að skoða búnað sem auðveldar meðhöndlun á fiskikörum í lestum ísfiskskipa og höfum komið okkur niður á frumdrög sem þarf að vinna nánar úr.“
Loks má nefna að Navis hefur hannað skipsskrokk með nánast lóðréttu stefni í stað perustefnis sem er algengast á fiskiskipum í dag. Hjörtur segir að með slíku stefni náist lengri vatnslína á skipið og jafnframt minna innfallshorn vatnslínu óháð hleðslu. Nokkurskonar "pera" er hluti af stefninu neðan sjólínu en hún stendur ekki fram fyrir stefnið. Þessi atriði gera skipið að öðru jöfnu léttara í framdrift. Þau eru þó engin nýlunda í skipatæknilegu tilliti en hafa ekki verið notuð við gerð fiskiskipa í seinni tíð. „Það verður gaman að fá tækifæri til að kynna hönnun okkar á sjávarútvegssýningunni og fá viðbrögð gesta við henni,“ segir Hjörtur Emilsson framkvæmdastjóri Navis að lokum.
Navis - Flatahrauni 5A - 220 Hafnarfjörður - Sími 544 2450 - Fax 544 2451 - Netfang navis@navis.is