Hjörtur á bás Navis á Íslensku sjávarútvegssýningunni ásamt þeim Zhang Hong Yu framkvæmdastjóra Lung Chuan skipasmíðasamsteypunnar í Kína til vinstri og James Cheng frá AMADA umboðsaðila Navis í Kína til hægri. „Íslenska sjávútvegssýningin fór fram úr okkar björtustu vonum. Bæði var almennur áhugi á því sem við vorum að kynna meiri en við gerðum okkur grein fyrir og eins komu beinar fyrirspurnir um hugsanlega aðkomu okkar að tilteknum verkefnum, sem væntanlega skýrist á næstu vikum og mánuðum hvað verður úr,“ segir Hjörtur Emilson framkvæmdastjóri Navis. Hjörtur segir að undanfarið hafi lifnað verulega yfir fiskiskipasmíðum í Noregi eftir nokkur róleg ár og greinilegt að þar sé að fara í gang talsverð endurnýjun á fiskiskipaflotanum. Frímann Sturluson skipatæknifræðingur bætir því við að vegna þessa séu að skapast ákveðin verkefni fyrir Navis vegna þess að norskir kollegar þeirra í skipahönnun hafi ekki undan og leiti eftir aðstoð hjá hönnuðum Navis.
Hjörtur segir að á sjávarútvegssýningunni hafi vakið mestan áhuga hönnun Navís á nýjum togara sem er tiltölulega einfaldur að gerð, létt skip með litlum íburði. „Áherslurnar eru að breytast dálítið. Nú vilja menn fyrst og fremst skip sem virka vel og eru án alls íburðar eða því sem kalla mætti óþarfa lúxus,“ segir Hjörtur. Hann segir að þegar menn séu komnir með slíka hönnun í hendurnar og ef þeir nái hagstæðum samningum við skipasmíðastöðvar, til dæmisí Kína, hafi hann trú á að það komist aftur hreyfing á smíði fiskiskipa fyrir íslenskar útgerðir. Frímann bendir á að þörfin fyrir endurnýjan íslenska fiskiskipaflotans sé klárlega fyrir hendi og því megi búast við að þegar hreyfing komist á málin muni nokkrar útgerðir fara af stað samtímis. „Endurnýjun íslenska fiskiskipaflotans hefur haft tilhneygingu til þess í gegnum tíðina að gerast í stökkum þannig að þegar stíflan brestur má gera ráð fyrir að það fari margir af stað á sama tíma,“ segir Frímann.
Navis - Flatahrauni 5A - 220 Hafnarfjörður - Sími 544 2450 - Fax 544 2451 - Netfang navis@navis.is