Það var um 30 manna viðræðunefnd frá kínverska fyrirtækinu sem mætti til fundarins með þeim Hirti og Frímanni í borginni Wei hai skammt fyrir suð-austan Peking.Fulltrúar Navís, þeir Hjörtur Emilsson og Frímann Sturluson eru nýkomnir heim frá Kína þar sem þeir áttu viðræður við fulltrúa kínverskrar útgerðar sem áformar að láta hanna og smíða fyrir sig 10 ný fiskiskip til úthafsveiða. Viðræðurnar í Kína koma í framhaldi af markaðsstarfi sem staðið hefur yfir í bráðum tvö ár í samstarfi við Amada umboðsaðila Navís i Kína. Útgerðin sem er í eigu einkaaðila hefur áhuga á að láta Navis hanna fyrir sig 60 metra togara samkvæmt teikningum sem eru svipaðar þeim sem Navis hefur verið að kynna að undanförnu og sem meðal annars mátti sjá á íslensku sjávarútvegssýningunni.
Kínverjunum liggur mikið á og því má gera ráð fyrir að hlutirnir gerist hratt á næstu mánuðum en miðað er við að smíði fyrsta togarans hefjist í byrjun næsta árs og verði lokið fyrir árslok 2012. Að sögn Hjartar má gera ráð fyrir að það skýrist á næstu vikum hvort samningar takast um að Navis taki að sér þetta verkefni. „Ef þetta gengur eftir væri það fyrsta skrefið inn á þann risamarkað sem Kína er,“ segir Hjörtur Emilsson.
Navis - Flatahrauni 5A - 220 Hafnarfjörður - Sími 544 2450 - Fax 544 2451 - Netfang navis@navis.is