Bjarni Hjartarson tækniteiknari sem verið hefur starfsmaður Navís frá árinu 2005 er fluttur til Ítalíu þar sem hann mun leggja stund á bílahönnun næstu árin. Bjarni hefur fengið inngöngu í alþjóðlega hönnunarskólann Istituto Europeo di Design í Torino. IED er með þekktari skólum í heiminum sem kenna bílahönnun og er meðal annars í miklu samstarfi við framleiðendur eins og Ferrari og BMW. Í nýlegu viðtali við Morgunblaðið sagði Bjarni að hann hefði alla tíð verið með mikla bíladellu og því hafi legið beint við að fara til Ítalíu og læra bílahönnun.
Brautin sem Bjarni fer á kennir hönnun samgöngutækja og skiptist í tvo hluta, annars vegar bílahönnun og hins vegar hönnun hjóla, snekkja og lesta. Bjarni var einn 24 sem komust inn í námið nú í haust. Hann segir einn annan Íslending hefja nám við skólann í haust en sá stefnir á snekkjuhönnun. Navís óskar Bjarna velfarnaðar í náminu og þakkar honum gott samstarf á liðnum árum.
Navis - Flatahrauni 5A - 220 Hafnarfjörður - Sími 544 2450 - Fax 544 2451 - Netfang navis@navis.is