Bjarni Hjartarson tækniteiknari sem verið hefur starfsmaður Navís frá árinu 2005 er fluttur til Ítalíu þar sem hann mun leggja stund á bílahönnun næstu árin.
Fulltrúar Navís, þeir Hjörtur Emilsson og Frímann Sturluson eru nýkomnir heim frá Kína þar sem þeir áttu viðræður við fulltrúa kínverskrar útgerðar sem áformar að láta hanna og smíða fyrir sig 10 ný fiskiskip til úthafsveiða.
„Íslenska sjávútvegssýningin fór fram úr okkar björtustu vonum. Bæði var almennur áhugi á því sem við vorum að kynna meiri en við gerðum okkur grein fyrir og eins komu beinar fyrirspurnir um hugsanlega aðkomu okkar að tilteknum verkefnum, sem væntanlega skýrist á næstu vikum og mánuðum hvað verður úr,“ segir Hjörtur Emilson framkvæmdastjóri Navis.
Navis kynnir nýjungar í skipahönnun á sjávarútvegssýningunni
Thursday, 15 September 2011 00:00
Meðal nýjunga sem Navis kynnir á Íslensku sjávarútvegssýningunni að þessu sinni er tveggja skrúfu togari, skrokkhönnun sem nýtir orkuna betur, leiðir til að létta meðferð kara í lestum ísfiskskipa og endurbætt hönnun við línuveiðar. Allt eru þetta dæmi um lausnir sem starfsmenn Navis hafa verið að vinna að undanfarin misseri samhliða margvíslegum verkefnum fyrir erlendar útgerðir og skipasmíðastöðvar.
Navis vinnur að breytingum á „Moonsund“-togaranum Blue Wave.
Wednesday, 14 September 2011 00:00
Nú standa yfir breytingar á toaranum Blue Wave sem er í eigu fyrirtækisins Blue Wave Ltd. Breytingarnar fara fram á Las Palmas og felast í því að endurnýja ljósavélar, auka frystigeta skipsins og ýmsar aðrar endurbætur á skipinu.