Um NAVIS ehf.
Ráðgjafarfyrirtækið NAVIS ehf. sinnir fyrst og fremst verkfræðiþ
jónustu er varðar skip, skipasmíðastöðvar, útgerð, fiskvinnslufyrirtæki, og skyldan rekstur. Starfsmenn búa að mikilli reynslu í sínu fagi sem aflað hefur þeim yfirgripsmikillar þekkingar, kunnáttu og faglegrar viðurkenningar hérlendis og erlendis.
Starfsmenn NAVIS hafa séð um nýhönnun á ýmsum gerðum skipa, svo sem togurum, nóta- og flotvörpuskipum, frysti- og fullvinnsluskipum, línu- og handfærabátum, dráttarbátum og mælingarbátum. Þá hafa þeir séð um fjölda breytinga á eldri skipum, breytingar og nýhönnun á vinnslulínum og komið að fjölda annarra mismunandi verkefna á sínum sérsviðum.
Helsta þjónusta í boði:
- Skipahönnun; breytingar og nýsmíði.
- Eftirlit og umsjón með viðgerðum, breytingum og nýsmíði.
- Gerð útboðsganga, smíða- og verklýsingar.
- Val á vélbúnaði.
- Vinnslulínur.
- Kostnaðaráætlanir.
- Hallaprófanir stöðugleikaútreikningar og BT-mælingar.
- Ástandsskoðanir við kaup, sölu eða leigu skips.
- Úttektir af ýmsu tagi t.d. “Draft eða Bunker Survey”
- Þykktarmælingar.
- Tjónaskoðanir og matsgerðir.
- Ráðgjöf varðandi ISM- og ISP-kóða.
- Alhliða ráðgjöf varðandi skipa- og vélaverkfræði.
NAVIS ehf. varð til í ársbyrjun 2004 þegar verkfræðistofurnar NAVIS ehf og Fengur ehf sameinuðu krafta sína. Báðar verkfræðistofurnar hvíldu reyndar á gömlum meið að segja má, en Fengur ehf rekur ættir sínar liðlega tvo áratugi aftur í tímann og NAVIS ehf var stofnsett í ársbyrjun 2003 af nokkrum fyrrverandi starfsmönnum Skipatækni ehf til tuga ára að meginhluta.
Hjá þessu tiltölulega nýja fyrirtæki starfa því hæfir einstaklingar sem mynda mjög sterka heild á sviði sjávarútvegs og skipasmíða.