EnglishÍslenska    hafðu samband    veftré

29. september 2009

Tilraun með efnarafal um borð í þjónustuskipi

Um þessar mundir fara fram tilraunir með að nota efnarafal til raforkuframleiðslu um borð í norska skipinu Viking Lady, sem er birgðaflutninga- og þjónustuskip fyrir olíuborpalla. Þetta er í fyrsta skipti sem slík tilraun er gerð um borð í flutningaskipi og er Navis meðal fyrirtækja sem tekið hafa þátt í verkefninu. Að sögn Karls Lúðvíkssonar verkfræðings sá Navis um að hanna gám utan um rafalinn með öllum öryggisbúnaði, loftræsti-, lyfti- og flutningsbúnaði. Þá hannaði Navis undirstöður og kom að ýmsum atriðum varðandi fyrirkomulag um borð.

Efnarafalinn um borð í Viking Lady gengur fyrir jarðgasi og framleiðir 300 kW inn á rafkerfi skipsins en það á að duga til að mæta stærstum hluta af venjulegri raforkuþörf um borð. Karl segir marga aðila hafa komið að þessu verkefni en það er meðal annars styrkt af norska ríkinu og stýrt af Det Norske Veritas. Verkefnið hefur staðið í hartnær tvö ár en áður en rafalinn var settur um borð í Viking Lady hafði hann verið prófaður í sex mánuði á landi.

Fjallað er um þessa tilraun sem tímamótaverkefni í vefritinu MarineLog þar sem meðal annars er haft eftir Tomas Tronstad verkefnisstjóra Det Norske Veritas að hann sé sannfærður um að í framtíðinni muni efnarafalar gegna stóru hlutverki í skipaútgerð.

TIL BAKA

STARFSSTÖÐ
Navis
Flatahrauni 5A
220 Hafnarfjörður

Sími 544 2450
Fax 544 2451

Netfang navis@navis.is