05. mars 2010
 |
| Hjörtur Emilsson, framkvæmdastjóri Navis |
„Við höfum mætt samdrætti hér heima með auknum verkefnum erlendis og gengið það vel. Nú erum við með nokkur verkefni utan landsteinanna og til að mynda stór verkefni í Japan og Argentínu en á síðarnefnda staðnum vorum við með menn í eftirliti með breytingaverkefni allan fyrri hluta vetrar til loka janúar á þessu ári,“ segir Hjörtur Emilsson, framkvæmdastjóri Navis í Hafnarfirði, sem sérhæfir sig í skipatengdum verkefnum á sviði hönnunar, ráðgjafar og eftirlits.
„Meirihluti okkar vinnu í dag er fyrir aðila erlendis og stórir verkþættir eru unnir hér heima á Íslandi. Við vonumst til að geta byggt ofan á þessa uppbyggingu erlendis enn frekar og stækkað fyrirtækið þegar frá líður, ekki síst þegar íslenski markaðurinn tekur við sér að nýju. Við reynum því alltaf að vera vel vakandi fyrir öllu sem er að gerast úti í hinum stóra heimi á þessu sviði. Hér heima sjáum við einnig mikla þörf fyrir smíði og breytingar í flotanum sem væntanlega munu fara á hreyfingu þegar jafnvægi kemst á í efnahagslífinu og fjármögnun verkefna verður auðveldari en nú er,“ segir Hjörtur og vísar til þess að bátaflotinn sé orðinn mjög gamall og endurnýjunar þurfi. Sama megi segja um ísfisktogaraflotann og fleira mætti tína til af fyrirsjáanlegri þörf í íslenska skipaflotanum.
„Í hinu daglega lífi okkar er samt sem áður alltaf eitthvað af minni verkefnum hér heima, mest á sviði ráðgjafar, minniháttar breytinga og stöðugleikaútreikninga skipa, tjónaskoðana og mats fyrir trygginga- og skipafélög. Okkar tilfinning er að verkefnum hér heima taki að fjölga þegar líða fer á árið og daginn að lengja og við erum boðnir og búnir í þau viðfangsefni,“ segir Hjörtur.
Argentískar útgerðir fundu þekkinguna á Íslandi
 |
| Togarinn Echizen Maru við bryggju í Ushuaia, syðst í Argentínu. Öllu lengra verða verkefni íslenskra þjónustufyrirtækja varla sótt! |
Í Montevideo í Urugvæ er nú verið að ljúka við breytingar á 90 metra argentískum frystitogara, Echizen Maru og þar hafa starfsmenn Navis undirbúið og haft eftirlit með framkvæmdum en þær snúast meðal annars um breytingar á vindubúnaði, brú, vistarverum og fleiru. Það er íslenska fyrirtækið Naust Marine ehf. sem selur allan vindubúnaðinn í skipið. Þetta er þriðji togarinn sem Navis tekur þátt í aðgerðum á fyrir argentínskar útgerðir en fyrirtækið annaðist hönnun breytinga, smíðalýsingar og útboð, auk eftirlits á framkvæmdatímanum. En hvernig víkur því við að íslenskt fyrirtæki fær verkefni sem þetta á jafn fjarlægum slóðum og raun ber vitni?
„Verkefnin í Argentínu koma til í gegnum verkefni sem við höfum unnið fyrir japanskar útgerðir og þannig má segja að þetta snúist um afspurn og að maður þekki mann. En ekki síður hitt að þessar suðrænu útgerðir finna að hjá okkur Íslendingum er mikla þekkingu að finna í útgerð og skipahönnun fyrir áþekkar aðstæður og þeir búa við og þær líta því gjarnan til okkar varðandi allar nýjungar í aðferðum og tækjabúnaði, hagræðingu í rekstri um borð og afkastaukningu í fiskveiðum,“ segir Hjörtur.
Efnarafall í Noregi
Af öðrum nýlegum áhugaverðum verkefnum Navis á erlendri grundu má nefna þátttöku í hönnun á búnaði til raforkuframleiðslu með efnarafölum fyrir norska skipið Viking Lady, sem er birgðaflutninga- og þjónustuskip fyrir olíuborpalla. Þetta er í fyrsta skipti sem slík tilraun er gerð um borð í flutningaskipi en Navis sá um að hanna gám utan um rafalinn með öllum öryggisbúnaði, loftræsti-, lyfti- og flutningsbúnaði. Þá hannaði Navis undirstöður um borð í skipinu og kom einnig að fjölmörgum öðrum smáatriðum varðandi fyrirkomulag um borð.
Efnarafallinn um borð í Viking Lady gengur fyrir gasi og framleiðir 300 kW inn á rafkerfi skipsins en það á að duga til að mæta stærstum hluta af venjulegri raforkuþörf um borð. Verkefnið er meðal annars styrkt af norska ríkinu og stýrt af alþjóðlega flokkunarfélaginu Det Norske Veritas. Verkefnið hefur staðið í hartnær tvö ár en áður en rafallinn var settur um borð í Viking Lady hafði hann verið prófaður í sex mánuði á landi.