EnglishÍslenska    hafðu samband    veftré

01. júní 2010

Navis hannar breytingar á „súper“togara fyrir kóreska útgerð

Maestro, sem er 120 metra langur og 19 metra breiður, lá um tíma fyrir í Færeyjum, þar sem þessi mynd var tekin.
Navis hefur tekið að sér að hanna og að hafa eftirlit með breytingum á 120 metra löngum togara, Maestro, fyrir suður Kóreska útgerð. Gert er ráð fyrir að eftir breytingar muni togarinn stunda uppsjávarveiðar á hestamakríl (horse mackerel) og öðrum uppsjávarfiski við vestur Afríku og hugsanlega í Kyrrahafinu líka. Með breytingunum er afkastageta skipsins aukin, meðal annars með því að stækka fiskmóttöku og að auka verulega frystigetu. Navis hefur áður hannað sambærilegar breytingar á fleiri skipum af svipaðri stærð. Þessi skip, sem stundum eru kölluð súper togarar, voru upphaflega hugsuð sem verksmiðjuskip með frystingu og bræðslu og sum þeirra voru jafnframt með niðursuðuverksmiðju um borð. Útgerð þeirra reyndist hins vegar þung og óhagkvæm.

Sjólaskip hf riðu á vaðið
Það er Einar A. Kristinsson véltæknifræðingur hjá Navis sem hefur umsjón með umsamdri hönnun á breytingunum á Maestro. Hann segir Maestro vera af svonefndri Moonzund gerð, en fjölmargir togarar af þeirri gerð voru smíðaðir fyrir Rússa í austur Þýskalandi í kringum 1990. Síðar smíðuðu Spánverjar aðra seríu af svipuðum skipum fyrir Rússa sem voru heldur styttri eða 105 m. Mörg þessara skipa lágu verkefna- og verðlaus árum saman. „Það voru hins vegar stjórnendur Sjólaskipa á Íslandi sem fyrstir gerðu sér grein fyrir möguleikum þessara skipa til uppsjávarveiða úti fyrir Marokkó og Máritaníu í vestur Afríku. Töluvert fyrir aldamótin síðustu setti útgerðin niður einfalda fiskvinnslu í skipi þeirra MV Heinaste og sendi skipið á uppsjávarveiðar vestur af Afríku með góðum árangri,“ segir Einar.

Einar segir að með meiri afkastagetu og aukinni hagkvæmni í rekstri hafi áhugi útgerða á gömlu súper togurunum aukist til muna og nú mjög líflegur markaður með þessi skip.
Síðar, árið 2003 leitaði útgerðin til NAVIS (áður FENGUR HF) eftir aðstoð við hönnun og útboð á umfangsmiklum endurbótum og breytingum, sem miðuðu að því að auka verulega afköst og hagkvæmni á veiðum skipsins við vestur Afríku. „Breytingarnar á Heinaste tókust vel og hann stundaði í framhaldinu uppsjávarveiðar úti fyrir Marokkó og Máritaníu með góðum árangri. Útgerð Sjólaskipa bætti seinna m.a. við tveimur 120 m súper togurum af Moonzund gerð auk þriggja 105 m súper togara sem voru smíðaðir á Spáni“. Síðan hafa útgerðir frá ýmsum löndum siglt í kjölfarið og í dag er mjög líflegur markaður með gömlu súper togarana að sögn Einars. Hann segir að Navis hafi tekið þátt í að breyta mörgum þessara skipa síðast liðin sjö ár.

350 tonna vinnslugeta á sólarhring
Þessa dagana er verið að hanna breytingarnar á Maestro en miðað er við að vinna við breytingarnar hefjist í Perú í september og getur hún tekið 4-6 mánuði. NAVIS hefur verið falið m.a. að útbúa teikningar vegna niðursetningar á nýjum stórum ljósavélum, stækkunar á móttökurými og sjókælikerfi fyrir móttökur, stækkunar á fiskvinnslu, niðursetningar á nýjum frystum, breytingar á dósalest í frystilest og að gera leiðbeinandi teikningar af vacuum fiskidælukerfi. NAVIS mun jafnframt útbúa smíðalýsingu fyrir fyrirhugaðar breytingar. Þá hefur NAVIS jafnframt veitt ýmsa ráðgjöf vegna nýrrar fiskvinnslu og auto-trolls búnaðar við togvindur ofl.

NAVIS mun veita tæknilega aðstoð við verkframkvæmdirnar auk þess að hanna og hafa eftirlit með vinnu við breytingarnar og því mun fulltrúi NAVIS verða á staðnum allan tímann. Eins og áður sagði miða breytingarnar að því að auka vinnslugetu skipsins og hagkvæmni um borð. Vinnslurými verður stækkað og sett verður niður ný fiskvinnslulína. Frystiafköst verða aukin með nýjum frystivélum og nýjir frystar með 350 tonna frystiafköst á sólahring settir í skipið. Um leið fer fram ýmiss viðhaldsvinna auk þess sem ný og fullkomin fiskileitartæki verða sett í skipið.

TIL BAKA

STARFSSTÖÐ
Navis
Flatahrauni 5A
220 Hafnarfjörður

Sími 544 2450
Fax 544 2451

Netfang navis@navis.is