EnglishÍslenska    hafðu samband    veftré

Samið um breytingar á þriðja togaranum í Argentínu
Echizen Maru sem hér sést við bryggju í Ushuaia í Argentínu er gerður út á bolfisk- og flatfiskveiða við Falklandseyjar og síðar í Suðurhöfum. 
Í byrjun apríl var samið um Navis taki að sér að hanna breytingar sem gerðar verða á togaranum Echizen Maru, en hann er 90 metra frystitogari sem gerður er út frá borginni Ushuaia syðst í Argentínu. Breytingarnar fela meðal annars í sér að settar verða niður tvær nýjar togvindur sem búnar eru átaks- jöfnunarkerfi (AutoTrawl), tvær netatromlur, sextán hjálparvindur, bobbingarennur fyrir tvö troll, stæði og sæti fyrir botn- og flotvörpu hlera. Þá verður skipt um ljósavél auk breytinga á brú og vistarverum skipverja. Auk þess að hanna fyrirhugaðar breytingar mun Navis útbúa smíðalýsingar, sjá um útboð og annast eftirlit með framkvæmd verksins sem ráðgert er að fari fram næsta haust. Að sögn Hjartar Emilsson framkvæmdastjóra Navis er þetta þriðji togarinn sem Navis tekur þátt í að breyta fyrir argentínskar útgerðir. Verkefnið er meðal annars til komið vegna samstarfs við Naust Marin ehf sem mun selja 20 nýjar vindur um borð í togarann. Gert er ráð fyrir að vinna við breytingarnar verði boðnar út í Suður Ameríku og taki um þrjá mánuði.
TIL BAKA

STARFSSTÖÐ
Navis
Flatahrauni 5A
220 Hafnarfjörður

Sími 544 2450
Fax 544 2451

Netfang navis@navis.is