EnglishÍslenska    hafðu samband    veftré

Navis á Fish Expo Faroes 2009
Hjörtur ásamt Albert Jónssyni aðalræðismanni og Ásu Baldvinsdóttur konu hans.
Navis er meðal þátttakenda á Færeysku sjávarútvegssýningunni Fish Expo Faroes 2009 sem haldin er í Þórshöfn dagana 26.-29.maí.

Alls taka níu íslensk fyrirtæki þátt í sýningunni í samvinnu við Útflutningsráð Íslands og er Navis og flest íslensku fyrirtækin með sameiginlegt sýningarsvæði.

Það er Hjörtur Emilsson framkvæmdastjóri sem stendur vaktina fyrir Navis á sýningunni og segir hann að þar gefist áhugavert tækifæri til að kynna þjónustu Navis í Færeyjum og að kynnast þeirri þróun sem nú á sér stað í færeyskum sjávarútvegi.

Samhliða sýningunni var haldin ráðstefna á vegum utanríkisráðuneytis Færeyja um markaðsmál í sjávarútvegi á tímum alþjóðlegrar efnahagskreppu.  Þá héldu Albert Jónsson aðalræðismaður Íslands í Færeyjum og Ása Baldvinsdóttir kona hans fjölmenna móttöku fyrir þátttakendur á sýningunni.
TIL BAKA

STARFSSTÖÐ
Navis
Flatahrauni 5A
220 Hafnarfjörður

Sími 544 2450
Fax 544 2451

Netfang navis@navis.is