EnglishÍslenska    hafðu samband    veftré

Eftirlit
Stór þáttur í starfi NAVIS er eftirlit með alls konar framkvæmdum, sérlega með nýsmíðum og breytingum skipa. Starfsmenn okkar hafa margra ára reynslu í slíku auk þess sem sumir þeirra hafa einnig starfað sem sérlegir skoðunarmenn fyrir alþjóðleg flokkunarfélög skipa um áratuga skeið. Þótt megin þáttur þessarar reynslu tengist fyrst og fremst fiskiskipum af öllum stærðum og gerðum, hafa starfsmenn okkar einnig annast eftirlit með breytingum á öðrum tegundum skipa eins og til dæmis bíla- og farþegaferjum sem eiga að sigla við Ísland. NAVIS hefur fengist mikið við tjónaskoðun fyrir tryggingafélög auk annarra minni háttar skoðana og útgáfu staðfestinga í tengslum við leigu skipa á milli aðila.


STARFSSTÖÐ
Navis
Flatahrauni 5A
220 Hafnarfjörður

Sími 544 2450
Fax 544 2451

Netfang navis@nav.is