Samkvæmt lögum gerir rannsóknarnefnd sjóslysa, á grundvelli niðurstaða rannsókna, tillögur til úrbóta ef verða mætti til þess að afstýra frekari slysum af sama toga. Siglingastofnun ber að sjá til þess að þær tillögur séu teknar til afgreiðslu. Áhersla er lögð á að vinna úr niðurstöðum rannsókna á sjóslysum og kappkostað að lærdómur, sem af þeim má draga, skili sér inn í reglur um öryggi skipa og áhafna. NAVIS-Fengur kemur hér að sem verktaki og vinnur nú að nokkrum rannsóknarverkefnum fyrir Siglingastofnun Íslands. Þau helstu eru:
NAVIS-Fengur veitir tæknilega aðstoð við breytingar á þremur verksmiðjuskipum sem Sjólaskip hf. keyptu og fá afhent í desember 2004 og janúar 2005. Skipin voru smíðuð á Spáni 1994-’95 fyrir Rússa og voru lengi gerð út frá Rússlandi til veiða á Alaskaufsa og uppsjávarfiski. Þau voru tekin úr rekstri á árunum 2000-2001 og voru eftir það verkefnalaus í höfn í Suður-Kóreu. (Fiskifréttir, 29. október 2004).