NAVIS-Fengur annaðist hönnun breytinga á Björgu Jónsdóttur, útboð verksins og framkvæmdaeftirlit í skipasmíðastöðinni í Gdynia.
Björg Jónsdóttir hét áður M/V Birkeland með heimahöfn í Björgvin í Noregi. Útgerðarfyrirtækið Langanes á Húsavík keypti skipið snemma árs 2004 og lét breyta því í Gdynia í Póllandi. Skipt var um brú skipsins, sett í það stærri aðalvél, nýjar togvindur og nýr og öflugur skrúfubúnaður. Rafkerfi skipsins er nú gert fyrir ,,fljótandi tíðni”, 50-60 rið, sem bætir nýtingu framdrifsbúnaðar.
Verkinu lauk síðla árs 2004 og skipið kom til heimahafnar á Húsavík í lok nóvembermánaðar.
Björg Jónsdóttir ÞH er rúmlega 70 metrar að lengd og 12 metra breið, smíðuð í Flekkefjord í Noregi árið 1975. Hún var endurbætt 1987 og lengd 1996.
Í skipinu er frysti- og flökunarbúnaður fyrir uppsjávarfisk sem afkastar 70-80 tonnum af frystum afurðum á sólarhring. Sá búnaður er að miklu leyti nýr, frá árunum 1999-2002. Skipið ber um 900 tonn í 6 RSW tönkum og 400 tonn af frystum afurðum.
Navis - Flatahrauni 5A - 220 Hafnarfjörður - Sími 544 2450 - Fax 544 2451 - Netfang navis@navis.is