NAVIS-Fengur veitir tæknilega aðstoð við breytingar á þremur verksmiðjuskipum sem Sjólaskip hf. keyptu og fá afhent í desember 2004 og janúar 2005. Skipin voru smíðuð á Spáni 1994-’95 fyrir Rússa og voru lengi gerð út frá Rússlandi til veiða á Alaskaufsa og uppsjávarfiski. Þau voru tekin úr rekstri á árunum 2000-2001 og voru eftir það verkefnalaus í höfn í Suður-Kóreu. (Fiskifréttir, 29. október 2004).

Skipin eru 105 metra löng og 20 metra breið, tæknilega vel búin. Nýir eigendur ætla að breyta og bæta búnað um borð til að hvert skip geti tekið um 3.000 tonn af afurðum í frystilestir. 400 tonna sjókælitankar eru í skipunum og fiskimjölsverksmiðjur sem hver um sig afkastar allt að 150 tonnum hráefnis á sólarhring. Frystigeta verður yfir 200 tonn á sólarhring í hverju skipanna.
Skipunum verður haldið til veiða við Afríkustendur að loknum breytingum. Þar hafa Sjólaskip stundað útgerð og veiðar frá því árið 1997 þegar veiðileyfi fékkst fyrir togara fyrirtækisins, Heinaste*, í lögsögu Marokkó. Sjólaskip hafa einnig veiðileyfi í lögsögu Márítaníu og kaup verksmiðjuskipanna þriggja tengjast boði stjórnvalda þar í landi um leyfi fyrir fleiri skip.
* Verkfræðistofan Fengur kom á sínum tíma að breytingum á Heinaste fyrir Sjólaskip hf. Fengur gerði verk- og útboðslýsingu og bauð verkið út. Skipasmíðastöð í Póllandi fékk verkefnið, sem varðaði endurnýjun og breytingar á vinnslukerfinu, sjókælikerfi, ískrapakerfi, nýja ljósavél, breytingar á svartolíukerfi fyrir aðalvélar og fleira.
Navis - Flatahrauni 5A - 220 Hafnarfjörður - Sími 544 2450 - Fax 544 2451 - Netfang navis@navis.is