Samkvæmt lögum gerir rannsóknarnefnd sjóslysa, á grundvelli niðurstaða rannsókna, tillögur til úrbóta ef verða mætti til þess að afstýra frekari slysum af sama toga. Siglingastofnun ber að sjá til þess að þær tillögur séu teknar til afgreiðslu. Áhersla er lögð á að vinna úr niðurstöðum rannsókna á sjóslysum og kappkostað að lærdómur, sem af þeim má draga, skili sér inn í reglur um öryggi skipa og áhafna. NAVIS-Fengur kemur hér að sem verktaki og vinnur nú að nokkrum rannsóknarverkefnum fyrir Siglingastofnun Íslands. Þau helstu eru:
Rannsóknir á vatnsþéttileika, stöðugleika og loftflæði tengjast ofangreindum tillögum rannsóknarnefndar sjóslysa eftir slys til sjós þegar leki hefur komið að skipum og þau sokkið eða þegar loftinntök eða gangráðar hafa óbeint orðið þess valdandi að skip hafi orðið vélarvana og þau strandað. Verkefni þessi hafa verið í vinnslu nokkurn tíma og nokkrar frumniðurstöður hafa þegar birst. Gert er ráð fyrir að skýrslur liggi fyrir í lok ársins 2005.
Navis - Flatahrauni 5A - 220 Hafnarfjörður - Sími 544 2450 - Fax 544 2451 - Netfang navis@navis.is